153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

Störf þingsins.

[13:47]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Herra forseti. Kvennafrídagurinn er baráttudagur kvenna fyrir jöfnum kjörum á við karla og var fyrst haldinn á Íslandi 24. október 1975. Nú, árið 2022, eru laun karla tæpum 22% hærri en laun kvenna. Konur vinna því jafnan launalaust frá klukkan korter yfir þrjú. Karlar hafa einnig forskot inn í áhrifastöður og stjórnir og verma þar sæti langt umfram konur. Um árabil hafa konur verið í meiri hluta í háskólanámi en þó að hinar hefðbundnu karla- og kvennastéttir hafi breyst og meira flæði sé orðið á milli stétta erum við enn með þennan mikla mun á launakjörum. Við erum enn að heyra sögur af konum sem sækja um störf eða stöður og fá spurninguna: En átt þú ekki svo mörg börn? Fylgifiskur mismununar eftir kyni í launamálum í samfélagi okkar sem skipar fólki markvisst í virðingarstöðu eftir tekjum, stétt og stöðu ýtir svo undir kynbundið ofbeldi og misrétti þar sem láglaunakona er enn neðar í virðingarstiganum en hálaunaður karl. Af hverju er ég að ræða þetta? Er mér illa við karla? Nei, hreint ekki, ég á þrjá drengi og eina stúlku. Ég vil einfaldlega að þeirra tækifæri séu jöfn og að laun fólks séu metin út frá hæfni, reynslu, menntun og öðru slíku en ekki út frá kynferði. Það lýsir því kannski best hvernig við kynjum alltaf launin að lesbíur séu launahærri en aðrar konur og hommar séu launalægri en aðrir menn. Hversu galinn er sá samfélagssáttmáli að karlmennskan sé alltaf viðmiðið? Samkvæmt spám Sameinuðu þjóðanna næst jafnrétti kynjanna ekki fyrr en eftir 300 ár. Getum við reynt að gera aðeins betur? (Gripið fram í: Heyr, heyr. )