153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

Störf þingsins.

[13:49]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Menntun er fjárfesting til framtíðar. Þetta er góð vísa sem er aldrei of oft kveðin. Skólinn er okkar mikilvægasta jöfnunartæki og góðir skólar eru grunnurinn að góðu samfélagi. Íslenskt menntakerfi er að mörgu leyti gott. Við höfum góða kennara sem eru án efa allir að reyna að gera sitt besta en íslenska menntakerfið kostar mikla peninga og samkvæmt alþjóðlegum mælingum, til að mynda PISA, erum við ekki að ná árangri í samræmi við þá fjármuni sem við verjum í þessa fjárfestingu. Of margir, sérstaklega drengir, geti ekki lesið sér til gagns og stelpurnar okkar glíma við kvíða. En þau eru auðvitað ekki vandamálið heldur er það verkefni okkar að laga þetta, sjá til þess að öllum börnum líði vel og þau fái eins mikið út úr grunnskólanum og kostur er. Það er því nauðsynlegt að ráðast í úrbætur. Tryggja þarf að kennarar hafi rými og stuðning til að mæta hverjum og einum nemanda þar sem hann er staddur með námsefni sem hæfir. Kennsluaðferðirnar þurfa að byggja á vísindum og þær þurfa að virka. Ég ætla að leyfa mér að efast stórkostlega um vísindin á bak við hraðlestrarpróf hjá ungum börnum, að það sé kennsluaðferð sem sé til þess fallin að bæta lestur og lesskilning. Það hlýtur að vera aðalatriðið að börnin skilji það sem þau eru að lesa. Því hlýtur að vera þörf á fjölbreyttari lausnum, mælingum og kennsluháttum.

En ef það er eitthvað sem er jafnvel enn mikilvægara en menntun barnanna okkar þá er það líðan barna. Það er því öskrandi staðreynd að aðeins 57% barna meta andlega heilsu sína góða eða mjög góða árið 2021 en 43% ekki. Þarna er svo sannarlega verk að vinna.