153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

Störf þingsins.

[13:54]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Mikilvægi ferðaþjónustunnar. Þegar litið er til mikilvægis ferðaþjónustunnar fyrir íslenskt samfélag má benda á að yfir 8% af landsframleiðslu fyrir Covid-19 komu frá greininni og einstök ár yfir 40% af gjaldeyristekjum þjóðarinnar. Efnahagsáfallið sem við urðum fyrir í tengslum við Covid-19 kom af mestum þunga niður hér á landi vegna mikils samdráttar í ferðaþjónustu. Að sama skapi byggist öflugur hagvöxtur á þessu ári á endurkomu ferðaþjónustunnar. Spáð er 6–7% hagvexti á þessu ári. Samkvæmt nýrri spá sem unnin var fyrir Ferðamálastofu er gert ráð fyrir að fjöldi ferðamanna verði um þrjár milljónir árið 2025 og þrjár og hálf milljón 2030.

Á undanförnum árum hefur náðst mikill árangur í að byggja upp innviði sem þjóna ferðamönnum sérstaklega en nýtast auðvitað einnig allri íslensku þjóðinni. Umræðan um uppbyggingu alþjóðaflugvalla landsins tengist auðvitað beint inn í þessa umræðu, bæði út frá umræðunni að innviðir séu til staðar sem stuðla að betri dreifingu erlendra ferðamanna um allt land og síðan auðvitað í tengslum við varaflugvallahlutverk alþjóðaflugvalla landsins. Framkvæmdum við Akureyrarflugvöll lýkur á næsta ári en hins vegar er nauðsynlegt að hefja framkvæmdir við Egilsstaðaflugvöll strax. Að stækka flughlöð, leggja akstursbraut og lengja flugbraut eru stærstu einstöku verkþættirnir í tengslum við uppbyggingu Egilsstaðaflugvallar.

Fyrir tveimur árum var nýr Dettifossvegur vígður, vestan við Jökulsá á Fjöllum, frábær framkvæmd sem tók langan tíma að fullgera. Það er hins vegar ljóður á því máli að vetrarþjónusta hefur ekki verið tryggð um veginn. Samkvæmt mínum upplýsingum er hægt að tryggja vetrarþjónustu um Dettifossveg fyrir 25–35 milljónir á ári með því að tengja snjómokstur og hálkuvarnir við þá vetrarþjónustu sem er sinnt um þjóðveg 1 og í Kelduhverfi. Því fjármagni, fáeinum milljónum, væri vel varið til að tryggja þessa þjónustu, herra forseti. Slagorð ferðaþjónustunnar á að vera: Allt Ísland, allt árið.