Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í síðustu viku ræddi ég hér í sérstakri umræðu við hæstv. fjármálaráðherra um störf óháð staðsetningu, dreifingu opinberra starfa um landið og mikilvægi þess að sérhæfð störf verði til um land allt. Í því ljósi er sérstaklega ánægjulegt að í dag var tilkynnt um flutning nýrra verkefna til starfsstöðvar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á Akureyri. Fimm opinber sérfræðistörf, þar af eitt stjórnunarstarf, flytjast þangað og stofnað verður nýtt teymi um brunabótamat. Framvegis verður því 21 stöðugildi á starfsstöðinni á Akureyri. Breytingarnar eru hluti af endurskipulagningu eftir að verkefni tengd fasteignaskrá voru færð til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Störfin fimm verða öll auglýst á næstu dögum. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra kynnti breytinguna á Akureyri rétt í þessu. Breytingin er fullkomlega í takt við stefnu ríkisstjórnarinnar um að fjölga sérhæfðum opinberum störfum á landsbyggðinni og í takt við stefnu HMS um öfluga starfsemi á nokkrum stöðum um landið. Á Sauðárkróki eru nú 27 störf við brunavarnir og einnig er þar þjónustuver, bakvinnsla og umsýsla með greiðslum húsnæðisbóta. Þá eru einnig starfsstöðvar í Borgarnesi og Reykjavík. Ég fagna því heils hugar að opinber störf færist á landsbyggðina. Það er mikið hagsmunamál fyrir samfélagið allt að fjölbreytt, opinber störf dreifist um landið allt. Það verður gert eftir ýmsum leiðum, t.d. með því að efla starfsstöðvar opinberra stofnana á landsbyggðinni, flytja sérhæfð störf eða auka tækifæri til að vinna störf óháð staðsetningu. Markviss vinna á þessu sviði samhliða stöðugri eflingu innviða gefur íbúum landsins raunverulegt val um búsetu. Reynslan af flutningi opinberra starfa og verkefna er góð. Áfram veginn.