Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Hvort á ég að taka peninginn af þér úr buxnavasanum hægra megin eða vinstra megin? Þetta eru kostirnir sem hæstv. fjármálaráðherra stillir upp líkt og um sé að ræða sérstaka sparnaðaraðgerð fyrir almenning. Ég er að sjálfsögðu að tala um það fjármálalestarslys sem hangir enn yfir okkur tæplega 20 árum eftir að Framsóknarflokkurinn breytti Íbúðalánasjóði í spilavíti. Nú heldur fjármálaráðherra blaðamannafund alvörugefinn á svip og spyr: Hvort viljið þið, krakkar mínir, taka á ykkur höggið gegnum ríkissjóð eða í gegnum lífeyrissjóðinn ykkar? Þannig hefði a.m.k. verið heiðarlegast af honum að orða spurninguna. Hvort á ég að taka af þér peninginn úr hægri vasanum eða vinstri vasanum? Hvaða tönn á ég að draga úr þér? Þú mátt velja þér tönn. En stóra spurningin er hins vegar þessi: Hvaða merkingu hefur ríkisábyrgð héðan í frá ef löggjafinn telur sig þess umkominn að gjörbreyta leikreglunum eftir á? Hvaða afleiðingar hefur það að umgangast ríkistryggð skuldabréf og þá skilmála sem liggja þeim til grundvallar með þessum hætti? Hvað þýðir þetta fyrir lánshæfi ríkissjóðs til lengri tíma? Og hvað þýðir þetta fyrir samvinnuverkefnin sem verður ráðist í hérna á næstu árum og samstarf ríkissjóðs við stofnanafjárfesta? Þetta eru stóru spurningarnar sem við þurfum að ræða hér í þingsal á næstu dögum.