153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

umsóknir um ríkisborgararétt.

[14:07]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Virðulegi forseti Alþingis Íslendinga. Ríkisborgararétt er hægt að fá eftir tveimur leiðum, annars vegar með því að sækja um til Útlendingastofnunar og fara í gegnum stjórnsýsluleið og fá ríkisborgararétt samkvæmt stjórnvaldsákvörðun, og hins vegar með því að sækja um beint til Alþingis sem veitir ríkisborgararétt með lögum. Samkvæmt lögum um ríkisborgararétt skal Útlendingastofnun, áður en umsókn er lögð fyrir Alþingi, afla umsagnar lögreglustjóra á því svæði og skal Útlendingastofnun jafnframt gefa umsögn um umsóknina. Hafið þið heyrt þessa ræðu áður? Já, ég er sennilega að flytja hana í fimmta eða sjötta skipti, ég er eiginlega að missa töluna, þar sem það hefur gerst núna eina ferðina enn að Útlendingastofnun neitar að afhenda þinginu gögn sem stofnuninni ber lögum samkvæmt að afhenda þinginu svo þingið, Alþingi Íslendinga, geti sinnt sínu hlutverki við það að veita ríkisborgararétt með lögum. Samkvæmt lögum ber stofnuninni að afhenda okkur þessi gögn og stofnun segir einfaldlega nei.