umsóknir um ríkisborgararétt.
Herra forseti. Við ræðum hér endurtekið efni, allt of oft endurtekið af því að allt of oft hafa undirmenn dómsmálaráðherra staðið í vegi fyrir því að Alþingi geti sinnt hlutverki sínu gagnvart fólki sem á heimtingu á íslenskum ríkisborgararétti. Við vorum fyrir um tveimur vikum að afgreiða lög um veitingu ríkisborgararéttar til sex einstaklinga sem með réttu hefðu átt að vera með í þeim hópi sem var afgreiddur í vor. Við erum mörgum mánuðum eftir á vegna þess að dómsmálaráðherra leyfir sínum undirsátum að standa í vegi fyrir hlutverki Alþingis samkvæmt lögum. Við ræddum þetta oft í vor, mjög oft, mjög mjög oft, svo oft að dómsmálaráðherra fór að saka okkur um málþóf því að við værum svo oft í fundarstjórn. Við því er ein einföld lausn: Að dómsmálaráðherra hætti að þvælast (Forseti hringir.) fyrir Alþingi. Þá þurfum (Forseti hringir.) við ekki eina einustu fundarstjórn. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)