153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

umsóknir um ríkisborgararétt.

[14:10]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Þetta er mikil sorgarsaga og mér þykir eiginlega sorglegast af öllu að hæstv. forseti Alþingis Íslendinga skuli ekki standa með Alþingi í þessu máli. Við höfum hér mánuðum saman og árum saman skorað á forseta að standa með þinginu, en ég a.m.k. hef í rauninni haft Útlendingastofnun fyrir rangri sök af því að í svari sem barst í liðinni viku frá Útlendingastofnun kemur fram að þetta sé fyrirkomulag að beiðni og að fyrirmælum dómsmálaráðuneytisins. Það er dómsmálaráðuneytið og hæstv. dómsmálaráðherra sem fyrirskipa, greinilega, samkvæmt þessu erindi, að stofnun úti í bæ skuli virða að vettugi Alþingi Íslendinga. Þvílík smán. Þvílík smán og skömm að forseti Alþingis skuli ekki standa með Alþingi Íslendinga í þessari aðför að þessari virðulegu stofnun.