umsóknir um ríkisborgararétt.
Virðulegur forseti. Aðeins fyrst út af því sem fram kom hjá hv. þm. Andrési Inga Jónssyni um að fólk ætti heimtingu á íslenskum ríkisborgararétti. Ég kannast ekki við að neinn eigi heimtingu á ríkisborgararétti en menn geta haft rétt á að sækja um hann. Það er hið eðlilega ferli.
Hér er einhver reginmisskilningur í gangi enn og aftur, virðulegi forseti. Það hefur ekkert verið staðið í vegi fyrir því að þessar upplýsingar berist til Alþingis, þær umsóknir sem óskað er eftir að þangað berist um íslenskan ríkisborgararétt, en þær eru unnar í þeirri röð sem umsagnirnar berast til Útlendingastofnunar. Það hefur verið ákvörðun mín að standa við það að fólk er ekki tekið fram fyrir í þeirri röð þó að það exi við að það vilji að umsóknir berist til Alþingis. Það er alveg hárrétt að hér hafa menn staðið í þessum ræðustól og úthúðað starfsmönnum Útlendingastofnunar þegar ég hef hvatt þá til að beina orðum sínum að mér. Ég fagna því sérstaklega að sú stefnubreyting skuli vera hjá þeim (Forseti hringir.) sem hér hafa verið að ásaka starfsfólk stofnunarinnar fyrir að vinna ekki sína vinnu vegna þess að það er mín ákvörðun að vinna þetta með þessum hætti og ég tek ábyrgð á því. (Gripið fram í.)