umsóknir um ríkisborgararétt.
Forseti. Já, mikil er skömm dómsmálaráðherra. Ég myndi bara segja það vera svívirðilegt. Við erum hér á Alþingi að sinna lögbundnu hlutverki okkar og skyldum gagnvart fólki sem sækir um ríkisborgararétt og hæstv. dómsmálaráðherra kemur hér upp og viðurkennir og hefur sagt það að hann sé bara á móti því að þetta ferli sé unnið á þann hátt sem það hefur verið unnið áður, að Alþingi geti afgreitt þessar umsagnir tímanlega eins og alltaf hefur verið gert. Hæstv. ráðherra er í raun á móti þessu ferli, að Alþingi sinni yfir höfuð þessari lögbundnu skyldu sinni þannig að hann tekur þá ákvörðun að hann ætli bara að segja sinni undirstofnun að sinna ekki lögbundinni skyldu sinni, að hlusta ekki á Alþingi eða kröfur Alþingis um að fá umsagnir til að geta sinnt sinni lögbundnu skyldu. Dómsmálaráðherra stendur í vegi fyrir því (Forseti hringir.) og honum finnist það bara allt í lagi. Allt í lagi.
Ég tek undir þá kröfu að hæstv. forseti (Forseti hringir.) stígi hér inn og tali fyrir hönd okkar allra því að þetta er bara aðför (Forseti hringir.) að þingræðinu, forseti. Mér finnst ekki að neinn í þessum sal ætti að leyfa þessu að viðgangast. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)