153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

umsóknir um ríkisborgararétt.

[14:15]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Aðeins vegna orða hæstv. dómsmálaráðherra: Mér finnst hann fara svolítið eins og köttur í kringum heitan graut þegar hann segist ítrekað hafa kallað eftir því að við gagnrýndum hann. Þetta átti sér stað allt síðasta kjörtímabil og þá var oft látið í það skína að Útlendingastofnun hefði bara svolítið um það að segja hvernig hún gerði það. En nú er komið í ljós hvers smánin er og hún er hæstv. dómsmálaráðherra sem situr auðvitað í skjóli Alþingis, raunar líklega bara í 18 mánuði en 18 mánuði samt, og honum ber auðvitað að virða það valdsvið sem Alþingi hefur og honum ber líka að virða sín valdmörk. Ég held að það væri réttast af hæstv. dómsmálaráðherra að hugsa málið aðeins betur áður en hann heldur þessu til streitu.