153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

umsóknir um ríkisborgararétt.

[14:16]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Varðandi þetta mál, að Alþingi geti afgreitt umsóknir um ríkisborgararétt, þá er hreint með ólíkindum að Útlendingastofnun skuli leyfa sér að haga sér með þessum hætti í skjóli ráðherrans. Það að setja þetta mál í sama pott og afgreiðslu umsókna til Útlendingastofnunar er algerlega með ólíkindum. Hver er munurinn á þessum málum? Jú, Útlendingastofnun á samkvæmt 6. gr. laga um ríkisborgararétt að veita umsögn með umsókn sem fer síðan til afgreiðslu á Alþingi. Hvað á Útlendingastofnun að gera samkvæmt 7. gr.? Jú, afgreiða umsóknir til sín. Þetta er grundvallarmunur á þessum tveimur málum. Annars vegar sækir einstaklingur um ríkisborgararétt til Útlendingastofnunar og hins vegar til Alþingis. Þáttur Útlendingastofnunar í afgreiðslunni á Alþingi er sá að veita umsögn. Það er ekki það sama og að Útlendingastofnun sé að veita ríkisborgararétt. (Forseti hringir.) Þetta er tvennt ólíkt. Að vera að blanda þessu saman er hreinlega með ólíkindum, annars vegar er þetta undirbúningur undir löggjafarstarf og hins vegar undirbúningur undir stjórnvaldsákvörðun. Að sjálfur dómsmálaráðherra skuli ekki skilja muninn (Forseti hringir.) á þessu tvennu er bara algjörlega með ólíkindum og að við skulum vera að eyða orku í þetta lengur. Ég bara vona að við höldum ekki áfram á þessari vegferð.