153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

umsóknir um ríkisborgararétt.

[14:18]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Við skulum hafa það algjörlega á kristaltæru að hér er um að ræða umsóknir um ríkisborgararétt til Alþingis. Það starf vinnur nefnd, allsherjar- og menntamálanefnd, og undirnefnd þeirrar nefndar. Það skal líka vera algerlega á hreinu að þegar nefnd biður um gögn frá stjórnvöldum þá er samkvæmt lögum um þingsköp sjö daga frestur til að skila þeim gögnum. Þetta hefur verið gert svona í fjöldamörg ár og allt í einu breytist það þegar hæstv. núverandi dómsmálaráðherra mætir og segir: Hey, ég ætla að blanda þessum umsóknum saman við almenna umsókn um ríkisborgararétt, sem gengur bara ekki upp því að það er ekki sama málsmeðferð hjá þessum tveimur aðilum, Alþingi annars vegar og Útlendingastofnun hins vegar. Þetta eru tvær mismunandi biðraðir í tvö mismunandi ákvarðanaferli. Samkvæmt lögum um þingsköp hefur Útlendingastofnun sjö daga til að veita þessi gögn sem nefndin hefur ítrekað beðið um.