umsóknir um ríkisborgararétt.
Virðulegur forseti. Það er ágætt að nefna það hér í byrjun að ekki hefur verið stoppuð nein afhending á gögnum. Þau verða afhent þau þegar þau verða fullunnin. Alþingi Íslendinga getur ákveðið hvað það gerir í þessum efnum. Það getur sett lög um ríkisborgararétt einstaklinga, burt séð frá allri þeirri vinnu sem er kveðið á um í lögum, ef það kýs svo að gera, og unnið sína vinnu. Það var kannski tilefni þess að í bréfi frá ráðuneytinu til nefndarinnar var rakið hvernig umsóknir um ríkisborgararétt sem bárust þinginu á þessu ári hefðu verið unnar þar sem þessar upplýsingar voru hreinlega ekkert notaðar. Það var veittur ríkisborgararéttur án þess að skoðuð væru ýmis þau atriði sem kveðið er á um í lögum. En Alþingi getur gert það. Valdmörk okkar er alveg skýr í þessu. Kveðið er á um að (Forseti hringir.) dómsmálaráðuneyti, stofnanir þess, Útlendingastofnun, eigi að koma með ákveðnar upplýsingar til þingsins (Forseti hringir.) varðandi umsóknir sem þangað berast um ríkisborgararétt en ekki er kveðið á um að taka (Forseti hringir.) eigi þær umsóknir fram fyrir í röðinni, fram yfir aðrar umsóknir þar sem fólk bíður í sínu eðlilega ferli (Forseti hringir.) og uppfyllir þau skilyrði sem sett eru fyrir íslenskum ríkisborgararétti í lögum. (HallM: Tvö mismunandi ferli.)