153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

umsóknir um ríkisborgararétt.

[14:24]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Virðulegi forseti. Hæstv. dómsmálaráðherra kemur hér upp og nefnir að það sé ekkert mál að afhenda þær umsóknir sem óskað er eftir af hálfu Alþingis. Þann 11. október sl. sendi allsherjar- og menntamálanefnd formlega beiðni um gögn á grundvelli 51. gr. laga um þingsköp Alþingis til Útlendingastofnunar. Samkvæmt lögunum hefur stofnunin sjö daga til að afhenda gögnin. Við gáfum þeim 14 vegna þess að við vitum að það tekur 14 daga að fá umsögn lögreglu. Það á ekkert að þurfa, við eigum ekkert að þurfa að fara í gegnum þessa beiðni vegna þess að samkvæmt lögum um ríkisborgararétt ber Útlendingastofnun skylda til að afhenda okkur þessi gögn. Það er ekki þegar stofnuninni hentar eða þegar hæstv. ráðherra hentar heldur innan sjö daga eða innan þess frests sem við gefum. Í bréfi sem hæstv. ráðherra vogar sér að nefna hér akkúrat í þessu samhengi, frá ráðuneytinu til allsherjar- og menntamálanefndar og þeirra nefnda sem afgreiða þessar umsóknir, kom fram að til þess að, með leyfi forseta, „höggva á þann hnút“ sem hafði verið í samskiptum þingsins og ráðherra, þá ætti Alþingi kannski bara að hætta að kalla eftir lögregluskýrslum, það væri eitthvert rugl, til að höggva á þann hnút og Alþingi hætti að veita fólki ríkisborgararétt sem hæstv. dómsmálaráðherra vildi ekki að fengi ríkisborgararétt. (Forseti hringir.) Ég er með góða hugmynd til að höggva á þennan hnút. Hún er sú að hæstv. ráðherra hætti að fyrirskipa undirstofnun sinni að brjóta lög. (Forseti hringir.) Hún er ekki bara að brjóta lög um ríkisborgararétt heldur lög um þingsköp Alþingis og stjórnarskrána sjálfa.