umsóknir um ríkisborgararétt.
Virðulegur forseti. Hæstv. ráðherra talar hér um að vera á undan í röðinni, allir þurfi að vera í sömu röðinni. Röð eftir hverju? Annars vegar á Útlendingastofnun samkvæmt lögum að veita Alþingi upplýsingar eða umsögn um umsóknir um ríkisborgararétt og hins vegar á Útlendingastofnun að veita ríkisborgararétt samkvæmt stjórnvaldsákvörðun. Hjá hæstv. ráðherra virðist vera ein röð eftir tveimur hlutum. Útlendingastofnun er að brjóta upplýsingaskyldu sína samkvæmt lögum með því að veita okkur ekki þessar umsagnir. Það er gjörólíkt því að Útlendingastofnun afgreiði umsóknir og taki stjórnvaldsákvörðun um það hvort veita eigi einstaklingi ríkisborgararétt eða ekki. En það sem er þarna undir er að það er verið að eyðileggja núverandi kerfi svo það geti komið annað kerfi í staðinn. Það er það sem verið að gera. Þetta er gert í skjóli þess að umboðsmaður Alþingis setti ofan í við Útlendingastofnun, setti ofan í við (Forseti hringir.) málsmeðferð Útlendingastofnunar á málum sem eru í bið hjá honum, hjá Útlendingastofnun, ekki hjá Alþingi.