umsóknir um ríkisborgararétt.
Herra forseti. Ég kem hér upp til að létta undir með hæstv. forseta við fundarstjórn og legg til að hæstv. forseti, þegar hann ræðir við hæstv. dómsmálaráðherra um þær athugasemdir sem hér hafa komið fram, hugi líka að því í leiðinni að laga meðferð Alþingis á þessu máli. Það er búið að benda á það ár eftir ár hversu gallað fyrirkomulag veitingar ríkisborgararéttar á Alþingi er. Aftur og aftur höfum við heyrt ráðherra, ekki hvað síst hæstv. ráðherra dómsmála, nefna að það þurfi að huga að þessu. Það hefur lítið gerst í því með þeim afleiðingum sem við sáum í fréttum ekki alls fyrir löngu um þau klúður sem hafa orðið hér á Alþingi á þessu sviði. Ég hvet því hæstv. forseta til að taka þetta samtímis með í reikninginn.