umsóknir um ríkisborgararétt.
Forseti. Þetta er algerlega með ólíkindum. Þetta er með ólíkindum. Ráðherra hefur komið hingað upp og í raun viðurkennt lögbrot. Það er öllum ljóst að þetta er lögbrot. Hann kemur hingað upp og ruglar saman tveimur mismunandi ferlum eins og það sé bara allt í lagi að afvegaleiða umræðuna á þann hátt. Þetta er tvennt mismunandi sem við erum að tala um. Eitt er umsókn um ríkisborgararétt til Alþingis og hitt er til Útlendingastofnunar og það er verið að grauta þessu saman eins og það sé bara eðlilegast í heimi.
Ég legg til að formaður hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar taki þetta mál fyrir því að ég tel vera algjörlega brýnt núna að hæstv. dómsmálaráðherra mæti fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og geri hreint fyrir sínum dyrum og við komumst að því hvort ráðherra sé að brjóta lög. Ég get ekki séð annað og mér finnst það ótrúlegt að við ætlum að sitja hér, þingheimur, og leyfa þessu að ganga yfir okkur.