153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

umsóknir um ríkisborgararétt.

[14:31]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Eins og kom fram í máli hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar hefur forseti verið beðinn um þetta áður, að hlutast til um þetta mál. Ég velti fyrir mér hvernig það hefur gengið í rauninni frá því að forseti var fyrst beðinn um að hlutast til um það. Kemur þetta forseta á óvart, þessi tilkynning ráðherra um að þetta sé hans persónulega ákvörðun sem hann ætli að taka ábyrgð á og ætli bara að hafa þetta svoleiðis? Er hæstv. forseti sáttur við að farið sé svona með þingskapalögin að geðþótta ráðherra? Ég vil að hæstv. forseti geri þinginu grein fyrir því.

Að lokum vil ég minnast á það sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði, að það hefði verið eitthvert klúður hér á Alþingi hvað þetta varðar. Það er rangt og ég hvet hann til að koma fram með gögn sem sýna annað.