umsóknir um ríkisborgararétt.
Herra forseti. Hæstv. dómsmálaráðherra hefur viðurkennt hér í ræðustóli Alþingis með bros á vör að hann hafi beðið Útlendingastofnun um að senda ekki inn gögn og þar með brjóta í bága við 51. gr. þingskapalaga. Ég spyr sjálfan mig hvort ekki sé orðin spurning um það að við förum og lesum aðeins í gegnum lög um ráðherraábyrgð. Þar stendur, með leyfi forseta:
„Ráðherra má krefja ábyrgðar samkvæmt því, sem nánar er fyrir mælt í lögum þessum, fyrir sérhver störf eða vanrækt starfa, er hann hefur orðið sekur um, ef málið er svo vaxið, að hann hefur annaðhvort af ásetningi eða stórkostlegu hirðuleysi farið í bága við stjórnarskrá lýðveldisins, önnur landslög eða að öðru leyti stofnað hagsmunum ríkisins í fyrirsjáanlega hættu.“ (Forseti hringir.)
Ég sé ekki betur en að hæstv. dómsmálaráðherra hafi gerst brotlegur við ráðherraábyrgð og skal því sæta þeirri ábyrgð.