umsóknir um ríkisborgararétt.
Herra forseti. Þó að ég ætli ekki í efnisumræðu hér þá tel ég rétt að aðstoða hæstv. forseta við að meta þá umræðu sem hér hefur farið fram, sérstaklega í ljósi athugasemdar frá hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni sem kannast ekkert við að það hafi komið upp nein vandamál við afgreiðslu þessara mála hér á Alþingi. Eins og ég nefndi áðan hefur þetta verið rætt hér ár eftir ár, vankantarnir á þessu fyrirkomulagi. Ég ætla að lesa, með leyfi forseta, upp nokkrar setningar úr frétt um þetta úr Morgunblaðinu en þar segir:
„Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun, sem dómsmálaráðuneytið sendi allsherjar- og menntamálanefnd í fyrradag, uppfylltu aðeins tveir af þeim tólf sem Alþingi veitti ríkisborgararétt í júní sl. búsetuskilyrði og þar af hafði helmingurinn aldrei átt lögheimili hér á landi og a.m.k. einn hafði ekki sannað á sér deili auk þess sem verulegur vafi var um aldur viðkomandi. Þá hafði í einu tilviki biðtími vegna brota ekki verið liðinn og í öðru tilviki var einstaklingur sem fékk ríkisborgararétt á boðunarlista Fangelsismálastofnunar“ (Gripið fram í: Var það Bobby Fischer?)