útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég held að það sé algjör samstaða um það hér á þingi að við veitum flóttamönnum frá Úkraínu vernd, höfum meira að segja gripið til ákveðinna ráðstafana til að geta afgreitt þeirra umsóknir í skilvirkara ferli heldur en annarra. Hitt er annað sem snýr að þeim sem eru að koma frá Venesúela og þetta eru fjölmennustu hóparnir. Þar er það ákvörðun kærunefndar útlendingamála að veita viðbótarvernd, sem væntanlega er ástæðan fyrir því að hingað eru komnir yfir 700 manns frá Venesúela, hafa óskað eftir vernd á þessu ári, á meðan sambærilegar tölur á Norðurlöndunum eru í kringum 70. Það er vegna þess að við erum að bjóða hreinlega betur heldur en aðrar þjóðir í skilyrðum þegar kemur að félagslegri þjónustu og réttindum. Reyndar er það nú svo sérstakt að íbúar frá Venesúela njóta hér meiri réttinda en fólk sem kemur frá Úkraínu. Ég veit ekki hvort fólk hefur áttað sig á því. Þetta frumvarp auðvitað eykur á skilvirkni kerfisins í heild (Forseti hringir.) en við gerum okkur fyllilega grein fyrir því að áfram mun verða mjög ögrandi verkefni að taka á móti fólki.