útlendingar.
Herra forseti. Hæstv. ráðherra fór alveg ágætlega yfir umfang vandans sem við er að eiga hér í inngangsorðum ræðu sinnar. En telur hæstv. ráðherra þetta frumvarp til þess fallið að taka á þessum vanda eða breyta honum að einhverju verulegu leyti? Leysir þetta málið að einhverju umtalsverðu leyti að mati hæstv. ráðherra? Það er ekki annað að sjá, nú þegar þetta mál kemur hér fram í fimmta skipti, að það sé enn búið að þynna það út, það sé enn búið að bæta í kaffibætinn og minnka kaffið í þessu máli sem hæstv. ráðherra reynir hér í fimmta sinn sem dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokks að koma í gegnum þingið. Mun þetta frumvarp að mati hæstv. ráðherra hafa eitthvað verulega um þann vanda sem hann lýsti hér í upphafi að segja eða þarf ekki miklu meira að koma til? Þarf ekki stefnubreytingu í þessum málaflokki?