útlendingar.
Virðulegur forseti. Hér er hv. þingmaður að velta því fyrir sér hvað verður um fólk sem er sem sagt ekki farið af landi brott innan 30 daga frá því að því hefur verið synjað um vernd. Það eru auðvitað nokkur undanþáguákvæði í frumvarpinu sem taka til þess að ef samvinna er milli þess einstaklings sem er í þessari stöðu og Útlendingastofnunar um að finna lausn á því að viðkomandi fari úr landi en það hefur af einhverjum tæknilegum ástæðum tafist þá heldur verndin áfram. Þá halda réttindin áfram. Það eru ýmis önnur atriði sem snúa að viðkvæmri stöðu og fjölskyldustöðu og öðru, það gæti gripið þarna inn í. Ef ekkert af þessu er til grundvallar, ef allir ferðapappírar eru klárir og ekkert því til fyrirstöðu að viðkomandi fari úr landi þá skil ég ekki af hverju viðkomandi á að fara á guð og gaddinn, eins og það er orðað. Þá er viðkomandi einfaldlega farinn úr landi eða færður úr landi. Það er bara staðan. Hann er í ólögmætri dvöl í landinu þar sem niðurstaðan liggur skýr fyrir. Honum hefur verið synjað um að vera hér og njóta verndar.