útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég vil taka undir með málshefjanda hér sem hóf þessa lotu um fundarstjórn forseta, að það er alveg með ólíkindum að ráðherra svari aldrei spurningunum sem spurt er eða fari a.m.k. í einhverjar málalengingar. Ég spurði t.d.: Er tryggt með frumvarpinu að málsmeðferð hælisleitenda hér á landi um alþjóðlega vernd sé í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands samkvæmt flóttamannasáttmála Sameinuðu þjóðanna? Erum við að tryggja þær? Erum við með rýmri reglur eða lægri þröskulda? Ég fékk ekkert svar við þessu. Ég spurði líka að því varðandi Venesúela en fékk svar um að það væri kærunefnd útlendingamála sem ákvæði það að við værum að taka á móti hlutfallslega fleiri flóttamönnum frá Venesúela en hin Norðurlöndin. Ég þekki ekki ástandið í Venesúela en Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna þekkir það greinilega mun betur en annars staðar á Norðurlöndum, þar sem við erum að taka á móti mun fleirum. Ég tek dæmi: Þetta ríki er með meiri olíulindir en Sádi-Arabía svo það liggi nú fyrir. (Gripið fram í.) Það getur vel verið að það sé stjórnarfarið, ég þekki það ekki, en Flóttamannastofnun er kannski sammála hæstv. ráðherra um ástandið þar, að fólk búi við kommúnisma og þá sé rétt að taka á móti fólki þaðan. En það virðist vera að þessi löggjöf (Forseti hringir.) breyti kannski ekki eins miklu og ráðherra gefur í skyn þar sem þetta liggur kannski bara hjá kærunefnd útlendingamála.