153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

útlendingar.

382. mál
[15:33]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég vildi bara koma hingað upp og benda þingheimi á að það er auðvitað augljós skýring á því af hverju hæstv. dómsmálaráðherra vill ekki að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra komi hingað til að ræða þetta mál. Það er vegna þess að sá síðarnefndi hefur lamið þann fyrrnefnda oftar en einu sinni niður þegar kemur að þessum málaflokki með því að vera algerlega ósammála honum í flestum þeim efnisatriðum sem lögð eru fram, til að mynda að einhverju leyti í þessu frumvarpi og svo almennum hugmyndum um að stofna hér alls konar búðir fyrir fólk á flótta með mismannúðlegar forsendur að baki. Það gæti verið ein ástæðan.

Varðandi það sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir sagði hér áðan um að menn væru að forðast það að ræða efnisatriði frumvarpsins þá erum við auðvitað bæði að ræða um efnisatriði málsins en við erum ekkert síður að ræða um það andrúmsloft sem þetta mál kviknar í. Við erum ekkert síður að ræða þann málflutning sem notaður er til að rökstyðja þessar breytingar, einfaldlega vegna þess að sá málflutningur er ekki í neinum tengslum við málið sjálft, þannig að þarna verður ekki slitið á milli. Við verðum að geta rætt bæði um efnisatriðin sjálf en líka andrúmsloftið sem málið er sprottið upp úr og þá umræðu sem átt hefur sér stað í aðdragandanum.