útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég hef fulla trú á því að hv. þingmenn sem eru hér að tala um lögbrot og að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra þurfi að vera í salnum viti í raun betur. En það er sjálfsagt að fara aðeins yfir það með þingmönnum Pírata og öðrum hvernig þetta gengur fyrir sig í ríkisstjórn. Ráðherra kemur inn með frumvarp sem er lagt fram fyrir ríkisstjórn, efnið er kynnt og um það er fjallað. Það fer síðan þaðan til þingflokka ríkisstjórnarflokkanna þar sem það fær umfjöllun, farið er yfir það og málið rætt. Að reikna með því að engar upplýsingar séu til staðar, hvort hæstv. félagsmálaráðherra sé kunnugt um þær breytingar sem haft hefur verið samráð við hann og fleiri um í þessu frumvarpi er auðvitað fásinna. Þetta sýnir, virðulegur forseti, bara enn og aftur hversu þunnur málflutningurinn er sem þau grípa til, til þess að skapa hér einhvers konar málþóf og tefja störf. Þau forðast að ræða hér efni frumvarpsins og eru á hlaupum undan þessu eins og ég veit ekki hverju.