útlendingar.
Herra forseti. Rétt í upphafi vil ég nú bara árétta það að hæstv. ráðherra stjórnar auðvitað ekki nákvæmlega um hvað við tölum eða hvernig við nálgumst þau mál sem hann leggur á dagskrá. Jafnframt minni ég á að hann er ráðherra alls málaflokksins, allra landsmanna, og ræða hans hér og framlagning frumvarpsins verður ekki tekin úr sambandi við þau ummæli sem hann hefur látið frá sér fara í öllum mögulegum þáttum, bæði í sjónvarpi og útvarpi. Kannski er nauðsynlegt að árétta að við erum ekki að tala um einhverja tollaflokka. Við erum nefnilega að tala um fólk sem er alls konar. Þess vegna benda t.d. ummæli hæstv. ráðherra, eins og þau sem hann lét frá sér fara í þætti um helgina, að hann gæti séð það eða einhverjir gætu séð það á útliti tiltekinnar þjóðar að fólk væri ekki þaðan, ekki endilega til þess að hæstv. ráðherra hafi hugsað sér að nálgast málið út frá því að hér séum við að tala um fólk. Það er hins vegar ágætt að hæstv. ráðherra segi að það verði mikið verkefni fram undan, eins og hann orðaði það áðan, að taka á móti fólki. Það sýnir að hann er a.m.k. sæmilega læs á heimsmálin og hvernig þau eru að þróast, svo ég tali nú ekki um að hann mætti minna sig á hvaða hlutverki fólk sem hingað hefur flutt á síðustu árum hefur gegnt þegar kemur að atvinnu- og efnahagslífi landsins.
En það er mikið talað um það og hefur verið mikið rætt að undanförnu að það eigi að varast skautun umræðunnar og að fólk detti niður í hjólför. Ég er alveg sammála því. Til að lágmarka að slíkt verði þá hefði auðvitað verið heppilegra að það ætti sér stað miklu víðtækara samráð á milli allra stjórnmálaflokka hér á þingi fyrir framlagningu slíks máls, svo ég tali nú ekki um samráð við þær stofnanir og félagasamtök sem þekkja til málsins og eru sum hver að vinna í málaflokknum frá degi til dags. En það hefur ekki verið gert, hvorki hér innan húss eða, eins og komið hefur fram hjá Rauða krossinum, gagnvart þeim. Hér erum við þess vegna að gera fimmtu atlöguna að því að ná fram nokkuð svipuðu frumvarpi sem öll hafa verið lögð fram af dómsmálaráðherrum Sjálfstæðisflokksins.
Þá er ekki úr vegi að rifja aðeins upp aðstæðurnar sem voru hér á þingi fyrir fimm árum. Undir lok kjörtímabils haustið 2017 var samþykkt lagabreyting með sólarlagsákvæði sem átti að renna út eftir næstu kosningar. Þeirri breytingu fylgdi yfirlýsing sem var undirrituð af formönnum allra flokka sem þá áttu fulltrúa á þingi, nema formanni Sjálfstæðisflokksins, þess efnis að forgangsmál á nýju kjörtímabili væri að endurskoða útlendingalögin með það fyrir augum að sníða af vankanta og bæta réttarstöðu fólks, sérstaklega fólks í viðkvæmri stöðu; barna, kvenna, hinsegin fólks og fleiri. Það átti sem sagt að freista þess að vinna að málinu í sem mestri þverfaglegri samvinnu til að forðast skotgrafir og skautun, líkt og mig minnir að hafi raunar verið gert á tímabilinu 2013–2016 undir stjórn þáverandi þingmanns, Óttars Proppés. Flestir voru sammála um að sú aðferðafræði hefði gefist nokkuð vel þó að vissulega hafi ýmislegt komið í ljós sem þurfti að skerpa á eða skýra í ljósi reynslunnar. En þessi yfirlýsing var fullkomlega hunsuð og fljótlega varð ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn, sem stýrði málaflokknum, ætlaði bara að ráða ferðinni á sínum forsendum og án nokkurs samráðs nema þá helst við félaga sína í stjórnarliðinu. Nú get ég í sjálfu sér ekki verið að gera neina sérstaka athugasemd við verklag Sjálfstæðisflokksins vegna þess að hann var vissulega ekki hluti af þessu verklagi. En ég verð þó að segja að ég er bæði hissa og mjög vonsvikinn yfir að samstarfsflokkarnir, bæði Framsókn og einkum Vinstri græn, skyldu þverbrjóta þetta loforð og leyfa þessu að gerast sem við erum búin að vera að upplifa síðustu fjögur árin og núna í fimmta skipti. Það hefur nefnilega margoft komið í ljós að það sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið að bjóða upp á í þessum málaflokki og varðandi þetta frumvarp hefur ekki hugnast Vinstri grænum neitt sérstaklega vel og þau hafa oft og tíðum ekkert síður verið í andstöðu við frumvarpið heldur en sumir flokkar í minni hluta. Ég vona svo sannarlega að þau verði áfram á bremsunni og muni sitt erindi, sín gildi og sína stefnu.
En þetta er nú, herra forseti, ástæðan fyrir þessari skautun í umræðunni og að hún er komin ofan í skotgrafir. Hér er sem sagt enn einu sinni verið að vinna frumvarp sem er unnið án víðtæks samráðs sem væri nauðsynlegt. Og það er nauðsynlegt, herra forseti, að minna á að fólk á flótta er í einni viðkvæmustu stöðu sem hægt er að hugsa sér. Það hefur neyðst til að yfirgefa heimili sín, líf sitt, þjóð sína og samfélagið. Því verður að mæta með mannúð og virðingu en ekki skapa úr aðstæðum þess ímyndaðar ógnir til að veifa í pólitísku skyni og grauta saman alls konar hlutum með að gera að því skóna að í rauninni sé bara verið að vernda það, þegar tilgangurinn er kannski sá, eins og kom fram í andsvari hjá hæstv. ráðherra, að ná fram öðrum lögum um forvirkar rannsóknarheimildir — sem hann hefur reyndar upp á síðkastið kallað því fallega nafni: Afbrotavarnir.
Allir sem hingað koma eiga rétt á mannúðlegri málsmeðferð og við eigum að láta það vera forgangsverkefni okkar við umfjöllun þessa frumvarps sem fer inn í allsherjar- og menntamálanefnd og kemur í hina djúpu efnislegu umræðu í 2. umr. Við eigum að tryggja þennan rétt. En það sem ætti að vera útgangspunkturinn er það alls ekki vegna þess að í þessu frumvarpi virðist einblínt á leiðir til að þrengja að stöðu fólks á flótta, draga úr réttindum þess í stað þess að verja og vernda mannréttindi og leitast við að koma þjónustu í betra horf. Við höfum t.d. heyrt hæstv. dómsmálaráðherra tala um það í fjölmiðlum hvernig glæpahópar herja á flóttafólk og notfæra sér viðkvæma stöðu til að hafa af því peninga. Hér hefur ráðherra ekki getað svarað með hvaða hætti þetta frumvarp er til þess fallið að stöðva það. Þvert á móti hefur hann vísað í annað frumvarp, þannig að hann virðist nota eitt frumvarpið til að reyna að ná öðru í gegn og annað til að ná hinu í gegn. Hann leyfir sér hins vegar að kasta fram fullyrðingum og gildishlöðnum staðhæfingum út og suður. Hann hefur t.d. ruglað umræðuna með því að tala um að efnahagslegum flóttamönnum hafi fjölgað svo mikið, vísaði svo í Venesúela í sjónvarpsþætti, var rekinn til baka með það en tilgangurinn virðist helga meðalið: Að sá efa, sá vafa og fá fólk til að trúa því að það sem hann leggur hérna fram sé brýn nauðsyn.
Við skulum ekki fara í grafgötur með að það þurfa að vera skýrar reglur um þetta. Ég er alveg sannfærður um að þingið, alveg eins og 2013 og 2016, gæti komist að nokkuð góðri sátt um málið og losað okkur við þennan skrípaleik sem hefur verið hérna síðustu fimm árin. Það var í rauninni það sem stjórnarandstaðan bauð upp á í vor, að fresta málinu þegar ljóst var að ekki náðist samkomulag, með það fyrir augum að fara í þverpólitíska vinnu og leita til stofnana úti í samfélaginu. En ekkert var gert í því. Við vitum bara að stríðið í Úkraínu — margoft hefur verið sagt hér að allir eru sammála um að opna dyrnar fyrir Úkraínu — hefur fært okkur nýjar áskoranir sem við þurfum að bregðast við, m.a. með því að styrkja innviði og tryggja að þetta fólk komist í viðunandi aðstæður. En gleymum því ekki að það er margt fólk, þó að það búi aðeins fjær, þó að það búi í heimsálfu sem tilheyrir ekki okkar, sem kemur og hefur verið að koma úr a.m.k. alveg jafn miklum hörmungum síðustu 10, 15, 20 ár.
Ég held að við þurfum fyrst og fremst að reyna að einfalda þetta móttökukerfi og hætta að láta fólk sem komið er með vernd hanga aðgerðalaust vikum og mánuðum saman í eilífri bið eftir húsnæði, skólavist og atvinnuleyfi. Það er auðvitað dýrt fyrir það sjálft en það er líka dýrt að notast sífellt við bráðabirgðaúrræði, skammtímalausnir. En fyrst og fremst er þetta ömurlegt fyrir þetta fólk, niðurdrepandi og til þess fallið að skapa félagsleg vandamál og önnur vandamál. Þess vegna held ég að samhliða því sem við fjöllum um þetta frumvarp og óháð hvernig því lýkur sé mjög nauðsynlegt að rammasamningur við sveitarfélögin um samræmda móttöku verði kláraður og fjármagn sett í verkefnið. Það mun auðvitað skila sér margfalt til baka í mannauði og annarri verðmætasköpun. Ríkinu hefur ekki tekist að semja við sveitarfélögin, þau sem hafa þó lýst yfir áhuga á verkefninu, eins og kom m.a. fram í svari hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn hv. þingkonu Þórunnar Sveinbjarnardóttur.
En svo ég fari nú í eitthvert efni frumvarpsins þá vekur það líka svolitla furðu að hæstv. dómsmálaráðherra sé að leggja fram frumvarp þar sem hluti verkefnisins, sem er núna á málefnasviði annars ráðherra, hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, sé á leiðinni þangað yfir án þess að hann komi og geri grein fyrir því á hvaða forsendum hann samþykkti það út úr ríkisstjórn og út úr sínum þingflokki. Hann hefur lýst mjög ólíkri skoðun á málaflokknum sem ég er miklu meira sammála og raunar má segja að ef einhver skautun hefur verið í umræðunni um útlendingamál síðustu tvær, þrjár vikurnar þá hefur hún birst milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins. Af því tilefni, ekki til að stilla hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra upp við vegg heldur bara leita skýringa, hvað er það sem gerir að verkum að hann treystir hæstv. dómsmálaráðherra, sem hann er ósammála í grundvallaratriðum um málaflokkinn?
Í raun þarf ég að lokum að láta segja mér það þrisvar, eins og Njáll heitinn sagði forðum, að Vinstri græn hafi samþykkt málið eins og það lítur út nákvæmlega núna. Það getur vel verið að þau hafi að einhverju leyti lagað það og biðin inni í þingflokki Sjálfstæðisflokksins að lokum bendir kannski til þess. En betur má ef duga skal.
Að lokum, af því að hér er talað um í frumvarpinu að svipta fólk öllum rétti 30 dögum eftir synjun, þá er bara verið að vísa fólki út á guð og gaddinn og á götuna. Það er verið að skapa nýjan hóp af heimilislausu fólki. Þetta er auðvitað fyrst og fremst ómannúðlegt og rangt. Þetta á eftir að skapa margvíslegan félagslegan vanda sem verið er að varpa yfir á sveitarfélögin. Þrátt fyrir virðingarverða tilraun til að gera undantekningar í því ákvæði þá mun þetta hitta marga fyrir og við megum ekki gleyma því, hæstv. ráðherra, að ýmislegt af þessu fólki getum við ekki einu sinni sent heim, það er ekki hægt að senda það heim. Það eru ekki einn eða tveir og gæti alveg verið stór hópur.