153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

útlendingar.

382. mál
[16:01]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Hæstv. dómsmálaráðherra sparar svo sem ekki sleggjudómana. Það er alveg í góðu lagi og ég talaði um að það væru nú þrátt fyrir allt virðingarverðar undanþágur þarna sem ég treysti nú bara ekki alveg frá hendi hæstv. ráðherra. En af því að hér er verið að tala um að hafa ekki kynnt sér frumvarpið, ja, þá finnst mér kannski stundum hafa örlað á því í þeim þáttum sem hæstv. dómsmálaráðherra hefur farið í að undanförnu að hann hafi nú ekki fullan skilning á samfélagi manna og mannlífinu og jafnvel ekki alltaf áttað sig sjálfur á því frumvarpi sem hann er að leggja fram, enda er það nú líklega unnið af lögfræðimenntuðum aðstoðarmönnum hans.