153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

útlendingar.

382. mál
[16:12]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Hér spyr hv. þingmaður mig spurningar sem ég hvorki get né vil svara. Ég efast reyndar um að hv. þingmaður fengi hæstv. dómsmálaráðherra til að svara um einhverja tiltekna tölu, hvar mörkin liggja, einfaldlega vegna þess að þetta er alþjóðlegt samtryggingarkerfi sem við notum til að bregðast við vanda sem getur komið óvænt upp. Ég spyr á móti hv. þingmann: Vill hann draga einhver mörk um fjölda þeirra flóttamanna sem koma frá Úkraínu og eru að flýja árásarstríð Rússa?