153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

útlendingar.

382. mál
[16:22]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Mér er bæði ljúft og skylt að verða við ákallinu um að svara þessu. Eftir þeim upplýsingum sem ég hef, hafandi verið í sambandi við hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, þá á hann því miður ekki heimangengt eins og sakir standa. Ég get reyndar bætt því við, vegna þeirrar hugmyndar að fresta umræðunni, að þá er hann einmitt á leiðinni til útlanda í fyrramálið í opinberum erindagjörðum. Þannig að það myndi nú ekki hjálpa umræðunni að fresta henni fram á morgun.