útlendingar.
Herra forseti. Það er algjörlega ótækt að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra eigi ekki heimangengt til þess að taka þátt í þessari umræðu þegar fyrir liggur að hann mun ekki eiga það á morgun heldur. Það er ekki hægt að halda þessari umræðu áfram. Ég hugsaði einmitt með mér hérna áðan, þegar ég sá fyrir mér að þessi umræða myndi nú mögulega færast yfir á morgundaginn þar sem þetta er mál sem ég held að flestir þingmenn vilji gjarnan ræða, og vonaðist til þess að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra myndi þá koma á morgun og gæti þá svarað þeim spurningum sem koma upp og annað. En það er alveg ljóst að það stefnir ekki einu sinni í það að hann verði hér á morgun. Það er ekki hægt að halda þessari umræðu áfram. Þetta frumvarp varðar málaflokk hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra beint. Því spyr ég: Ef það þykir eðlilegt að flutningsmaður frumvarpsins, hæstv. dómsmálaráðherra, sé hér til að svara fyrir sitt mál, sem er eðlilegt, hver eru þá rökin fyrir því að hinn ráðherrann sem stendur á bak við þetta mál sem varðar hans málaflokk beint, ekki óbeint, beint — hver eru rökin fyrir því að hægt sé að halda þessari umræðu áfram og klára hana án þess að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra sé á staðnum? Ég fer fram á að þessari umræðu verði frestað þar til hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra á heimangengt og getur tekið þátt í þessari umræðu.