útlendingar.
Virðulegur forseti. Það virðist vera sem einhverjum þingmönnum og mögulega heilu stjórnarflokkunum hafi yfirsést hvað stendur í frumvarpi hæstv. dómsmálaráðherra fyrst hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra er ekki hér í salnum. Hann hefur tjáð sig fjálglega um það hversu mótfallinn hann er ákveðnum atriðum sem verið er að opna á með þessu frumvarpi. Hann hefur tjáð sig þannig í fjölmiðlum en velur það að vera ekki hér í þingsal til að tjá sig um það. Það er hér sem umræðan þarf að fara fram og sú umræða sem hér fer fram er hluti af lögskýringargögnum. Það er mikilvægt að hann komi hingað inn og taki þátt í þessari umræðu sem getur sem betur fer staðið til miðnættis. Þannig að ég skora á hæstv. ráðherra, sem er örugglega að fylgjast með, að koma hingað fyrir miðnætti og taka þátt í þessari umræðu.