útlendingar.
Forseti. Ég skil alveg þessa frústrasjón, afsakið slettuna, og reiði hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar því að það er óþolandi að þurfa að sitja undir þessu, í alvöru talað. Okkur ber í pontu Alþingis að ávarpa ráðherra sem hæstvirta, í alvöru, okkur ber það. Ég má ekki tala til ráðherra hérna án þess að kalla hann hæstvirtan. En ráðherra kemur hingað í pontu — dómsmálaráðherra, hæstvirtur — og er að dylgja um okkur þingmennina og hvers vegna við erum hérna í pontu, hvernig við viljum stýra því, hvernig við nálgumst þessa umræðu, dylgjar um að við séum á flótta frá umræðunni, að við séum í málþófi. Af hverju á ég að standa hér uppi og ávarpa ráðherra sem hæstvirtan þegar hann ber svona ofboðslega litla virðingu fyrir okkur hér í þinginu? Þetta finnst mér bara ekki hægt og mér finnst að hæstv. dómsmálaráðherra ætti að biðja okkur afsökunar og hætta þessu. Ég kom hingað upp til að segja eitthvað allt annað en nú er ég búin með tímann.