153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

útlendingar.

382. mál
[16:55]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég tel að málsmeðferðartíminn hafi í sjálfu sér engin áhrif í þá átt að það komi fleira fólk til Íslands eða fleiri umsóknir um alþjóðlega vernd af því að málsmeðferðartíminn hér er langur. Ég held að það sé ekki málið. Ég held hins vegar þegar umsóknir koma þá sé gríðarlega mikilvægt að þeim sé svarað, vinnslan sé réttlát, málsmeðferð sé réttlát — hún getur leitt til höfnunar, þetta er umsókn og henni er svarað annaðhvort já eða nei — og líka að hún sé hröð. Það er hið klassíska „justice delayed is justice denied“, þ.e. ef réttlætinu er seinkað þá er verið að neita um réttlæti. Það er mjög mikilvægt að þeir sem falla undir okkar skilgreiningu um hverjir eru flóttamenn fái alþjóðlegu verndina. Það er mjög mikilvægt líka að við stöndum við alþjóðlegar skuldbindingar en höfum ekki lægri þröskulda (Forseti hringir.) og ekki rýmri reglur en önnur ríki. Það er það sem gerir Ísland að eftirsóknarverðari stað, jafnvel með óeðlilegri hætti en æskilegt er.