útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég held einmitt að ef við getum verið sammála um þessi markmið þá sé okkur ekkert að vanbúnaði. Þá er það kannski hitt sem ég vil vita hvort við séum ekki sammála um og það er þetta samspil löggjafarinnar, þeirra reglna sem gilda og svo framkvæmdarinnar. Það er hellingur sem við getum gert öðruvísi varðandi framkvæmd málanna þannig að þetta sé skilvirkara og þar af leiðandi betra fyrir alla aðila. Framkvæmdin skiptir hér miklu máli. Þegar við ræðum þetta frumvarp, framkvæmdina og þau úrræði sem við höfum þá þurfum við að hugsa um þennan málaflokk í heild sinni en ekki eins og staðan er í dag, ekki ræða þetta bara út frá því hvaðan fólk kemur í dag og hver staðan er akkúrat í dag heldur hvernig viljum við hafa kerfið til frambúðar og að það sé almennt og taki eins á öllum málum.