útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Það er annað sem mig langaði að spyrja hv. þingmann um en það eru orð hans um að honum þyki að við Íslendingar eigum að leggja miklu meira af mörkum í þessum málaflokki, ef ég skildi hann rétt. Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að gera vel þegar kemur að þessum málaflokki og við getum gert miklu betur að ýmsu leyti, en okkur greinir kannski á um hvað það þýðir. Mig langaði aðeins að spyrja hv. þingmann út í það. Ef hv. þingmaður vill ekki nota hlutfallslegan samanburð við nágrannalönd okkar þá er spurning hvort megi nota annan samanburð, t.d. hvernig fjármunir í málaflokknum hafa aukist frá 1 milljarði 2015 upp í 10 milljarða áætlaða á þessu ári, eða hvaða tölur og viðmið ætlum við að nota? Vill hv. þingmaður eyða meiri fjármunum í málaflokkinn? Vill hann taka á móti fleiri umsóknum? Vill hann veita fleirum hæli hér á landi og þá hve mörgum? Hve miklum fjármunum? Ég myndi vilja fá svör við þessu.