153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

útlendingar.

382. mál
[17:48]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Þetta voru svo margar spurningar að ég man þær nú ekki allar og kannski voru svörin átta, þrír, 12 og 16. [Hlátur í þingsal.] En ég vil að við verðum skilvirkari. Ég vil að við séum mannúðlegri og förum að þeim alþjóðasáttmálum sem við höfum gert um þessi mál. (dómsmrh.: Þá samþykkjum við þetta frumvarp. Ekkert flókið.) Vandamálið er að frumvarpið gerir ekki neitt í þessu. (dómsmrh.: Jú, jú ...) Fæ ég að tala, frú forseti, eða ætlar ráðherra að kalla hér fram í? Ég held að þegar kemur að þessum grundvallaratriðum séum við öll í þessum sal, alla vega langflest, sammála um að það er það sem við viljum. Þess vegna sagði ég að ég vonaði að hv. allsherjar- og menntamálanefnd hlusti og skoði hvert einasta ákvæði, hlusti á þær athugasemdir sem koma við þau og meti hvert og eitt þeirra út frá þeim, ekki út frá einhverjum gífuryrðum, ekki út frá því sem hefur komið í fjölmiðlum eða annars staðar, skoði hvert og eitt, vegna þess að ég held að ef við hugsum þetta saman þá getum við náð sátt.