153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

útlendingar.

382. mál
[17:50]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Þá er þetta margboðaða frumvarp loks komið hingað inn í þingsal. Í dag hefur farið fram svolítil umræða um hvort það sé við hæfi að ræða andrúmsloftið sem þetta frumvarp kemur inn í eða hvers konar ummæli fylgja málaflokknum þegar við förum inn í umræðuna, hvernig öllu er grautað saman til að blanda saman óskyldum hlutum og þar fram eftir götunum. Þess vegna vil ég taka fram að ég ætla bæði að taka mér það bessaleyfi að tala út frá því en einnig mun ég fara inn í nokkur einstök atriði frumvarpsins sjálfs, þótt það verði að sjálfsögðu ekki tæmandi.

Það sem er áhugavert við þetta er að þegar frumvarpið kemur loksins fram þá er það ekki þetta svakalega herta frumvarp sem hæstv. dómsmálaráðherra hafði boðað, að því leytinu til að ég held að flestir hafi skilið hann þannig að hann væri að boða herðingu frá því frumvarpi sem náði ekki fram að ganga á síðasta þingvetri. Það virðist vera sem aðrir flokkar í ríkisstjórninni hafi kannski haft þar einhverja hönd í bagga, atburðarásin sem virtist vera í kringum þetta mál gaf það a.m.k. svolítið til kynna. Málið sat fast í þingflokki Sjálfstæðisflokksins, flokki hæstv. dómsmálaráðherra, en ekki í þingflokkum Framsóknar og VG sem hleyptu málinu út án athugasemda sem er síðan ályktunar- og undrunarefni út af fyrir sig.

Það sem ég ætla að gera athugasemdir við er það hvernig umræðan hefur verið um þennan málaflokk; harðari og harðari eftir því sem vikunum hefur undið fram. Ég hef satt best að segja talsverðar áhyggjur af því að við séum að detta í eitthvert ástand sem þekkist því miður í sumum löndunum í kringum okkur, að stjórnmálaöfl verði stofnuð um það eitt að vera með harða innflytjendapólitík, ekki bara á stefnuskránni heldur líka í hinni málefnalegu umræðu úti í samfélaginu. Þetta allt saman hefur ekki leitt til neins góðs, held ég að sé óhætt að segja. En því miður virðist mér sem það sé alltaf meiri og meiri hljómgrunnur fyrir því að tala niður til þessa hóps sem er í neyð og er á flótta, hælisleitenda og flóttafólks. Menn ganga ótrúlega langt í því að etja saman hópum, eins og ég hef áður gert að umtalsefni, með því að segja að við getum ekki sinnt þessum málaflokki vel vegna þess að þá séum við að taka pening frá eldri borgurum, öryrkjum og þar fram eftir götunum.

Þetta er ekki boðlegur málflutningur. Það er ekki boðlegt að fara í slíka opinbera umræðu á meðan við erum að ræða efnislega hvernig við viljum haga þessum málum. Ástæðan fyrir því er ofureinfaldlega sú að langflestir sem koma hingað í gegnum þetta verndarkerfi og hæliskerfið eru bara fólk í neyð. Þetta er fólk sem er að flýja eitthvert ástand. Við eigum a.m.k. að reyna að setja okkur í spor þessa fólks. Við eigum að reyna að ímynda okkur hvernig það er að taka sig upp, heil fjölskylda, borga aleiguna fyrir að fara á einhverri lekri bátskænu yfir Miðjarðarhafið, bara svo dæmi sé tekið, með fjölskyldu og börn til að öðlast betra líf einhvers staðar í Evrópu. Við verðum a.m.k. að reyna að setja okkur í spor þessa fólks þótt þetta séu auðvitað aðstæður sem eru okkur algjörlega framandi. Þetta er fólkið sem verndarkerfið á að taka utan um. Við erum síðan með ákveðnar þjóðir þar sem mikið og vont ástand ríkir. Það er t.d. svolítið talað um hópinn frá Venesúela. Þar er mjög ótryggt og vont ástand. Það sama gildir auðvitað um Sýrland, Palestínu, Afganistan og fleiri ríki þannig að það er auðvitað ekkert óeðlilegt við að fólk frá þessum ríkjum sé í hópi þeirra, og ég hef nefnt Úkraínu líka — fólk frá þessum ríkjum er auðvitað mest áberandi þegar kemur að því að veita vernd og móttöku. Við verðum auðvitað að skoða þennan hóp frá Venesúela í því ljósi. Hann er kannski ekki áberandi í einhverjum öðrum ríkjum, en í þeim ríkjum er fólk frá öðrum löndum kannski meira áberandi. Það er einfaldlega allur gangur á þessu. Það er auðvitað ekki þannig að mengi flóttafólks sé svo úthugsað innbyrðis að menn raði sér með jöfnum hætti á þau lönd sem taka yfir höfuð á móti fólki. Einhverjar pælingar um að það hljóti að vera eitthvað afbrigðilegt, skrýtið, einkennilegt, jafnvel glæpsamlegt, einhver leki sem við þurfum að stöðva þegar við tölum um fólk frá Venesúela, geta allar átt sér mjög eðlilegar skýringar.

Ég hef svolítið kallað eftir því í umræðunni, svo við höldum áfram að tala um fólkið frá Venesúela sem er því miður alltaf verið að tortryggja, að við fáum svolítið gleggri upplýsingar um samsetningu þessa hóps. Hvaðan er þetta fólk að koma? Hversu margir eru stöðvaðir vegna þess að þeir eiga að vera að koma beint frá Sýrlandi en ekki Venesúela með þessi vegabréf? Því er stundum hent inn í umræðuna að einhver hluti þessa fólks sé fórnarlamb glæpa. Við verðum að fá að vita hversu hátt hlutfall það er, hvers konar glæpir, hversu mikið er um fölsuð vegabréf og annað í þeim dúr. Það gengur ekki allur hópurinn sé grunaður um að það sé eitthvað bogið á bak við þegar við fáum ekki nánari upplýsingar og tölulegar staðreyndir um hópinn til að geta greint hann sjálf og dregið einhverjar ályktanir út frá staðreyndum. Þetta er einn hópurinn. Hinn hópurinn sem er síðan stór og fyrirferðarmikill er auðvitað fólkið frá Úkraínu og það á ekki að þurfa að ræða mikið um þann hóp. Þessir tveir hópar setja mikið álag á kerfið okkar núna, álag á innviðina okkar. Þegar menn sem styðja þessa ríkisstjórn, að ekki sé minnst á hæstv. ráðherra þessarar ríkisstjórnar, tala um að innviðirnir okkar þoli ekki meir, þá segja þeir svolítið líka að þeir hafi ekki staðið sig í stykkinu í að byggja upp innviðina vegna þess að við erum bundin ákveðnum alþjóðlegum skilmálum og skuldbindingum til að taka á móti fólki. Ísland er ekki eina ríkið sem tekur á móti mörgum frá Úkraínu, svo dæmi sé tekið.

Svo fara menn alltaf í þessa hlutfallstöluleikfimi. Þá getum við t.d. sett okkur í spor Póllands sem tekur á móti ofboðslega mörgum frá Úkraínu, hlutfallslega miklu fleiri en Íslendingar. Það segir hins vegar ekkert um kerfið þeirra eða kerfið okkar og því finnst mér þessi leikfimi alltaf svolítið sérstök. Síðan verðum við kannski aðeins að koma inn á þessar fullyrðingar sem stundum er beint að okkur sem viljum hugsa margt í þessum málaflokki upp á nýtt: Þú aðhyllist þá bara opin landamæri eða hvað getum við tekið á móti mörgum? Það má alveg spyrja þá á móti: Hvað vilja þeir taka á móti fáum? Hver eru þolmörkin? Af hverju eru það bara þeir sem vilja rýmka frekar fyrir komu fólks sem þurfa að svara einhverju um fjöldann, en þeir sem vilja herða stefnuna, vera ómannúðlegri, þurfa hins vegar ekki að gefa svör um það hversu fáum þeir vilja taka á móti? Þetta er nefnilega ekki kvótakerfi. Við getum ekki gefið út kvóta á hverju ári sem segir til um hversu mörgum við ætlum að taka á móti. Það er ekki þannig. Alþjóðlegar skuldbindingar okkar leyfa það ekki og auðvitað verður það sama að gilda fyrir alla í sömu stöðu. Þess vegna getum við ekki, út frá öllum jafnræðissjónarmiðum, sagt við einhvern sem kemur í maí að hann fái að koma en í júní: Nei, því miður er kvótinn búinn, það gengur bara ekki upp. Því eru þessar spurningar allar svolítið sérstakar.

Síðan vildi ég kannski nefna að í frumvarpinu og lögunum sjálfum gengur 42. gr. út á það að við eigum ekki að senda fólk í stöðu þar sem því er einhver hætta búin. Við eigum ekki að vísa fólki á brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu. Þetta er regla sem á alltaf að vera í gildi, að mínu mati, þegar við tölum um fólk sem kemur frá Grikklandi, Ítalíu og Ungverjalandi, svo dæmi séu tekin, jafnvel þótt fólk sé komið með vernd í þeim ríkjum. Það er vegna þess, eins og margoft er búið að rekja og auðvelt að komast að með því að lesa sér svolítið til í fjölmiðlum, að staða fólks sem er komið með vernd í þessum ríkjum er oft verri heldur en áður en verndin fæst. Það er nú ástæðan fyrir því að manni finnst þessi 42. gr. laganna eiga kannski víðar við en reyndin er á Íslandi.

Síðan vildi ég að gera að umtalsefni mínu að þjónusta falli niður að 30 dögum liðnum. Í frumvarpinu er þetta sett þannig upp að þá sé búið að tæma allar leiðir og það sé ljóst að viðkomandi eigi ekki rétt á því að vera á Íslandi. Hann er í ólöglegri dvöl, eins og hæstv. dómsmálaráðherra nefnir gjarnan. Þá vil ég nefna að þetta er ekki einsleitur hópur. Það eru auðvitað undanþáguákvæði í öllum þessum fyrirætlunum frumvarpsins, og hafa svo sem verið áður, en ég hef samt áhyggjur af því að þarna séu einstaklingar, jafnvel einhverjir hópar, sem geta fallið á milli skips og bryggju, vegna þess að það eru stundum gerðar svolitlar kröfur til þessa fólks, að það verði sér úti um skilríki og pappíra sem það getur ekki gert einfaldlega vegna þess að ástandið í löndunum sem á að senda það til er með þeim hætti að það er kannski ekki hægt að ná neinu vitrænu sambandi við þær stofnanir sem sjá um þetta, eða hreinlega enginn vilji til að gefa slík svör. Það verður auðvitað að vera algerlega tryggt að 30 daga reglan brjóti ekki á réttindum fólks sem er hérna af því að það hreinlega getur ekki farið. Það hefur svolítið mikið verið talað um ferð sem allsherjar- og menntamálanefnd fór til Danmerkur og Noregs. Í Danmörku kom fram að hópur fólks væri í brottvísunarbúðum og hefði verið það mánuðum og árum saman vegna þess að ekki var hægt að senda það úr landi. Þetta fólk á að mínum dómi ekki að falla undir þessa 30 daga reglu og mér finnst það ekki alveg nógu skýrt í frumvarpinu, svo ég segi það hreint út.

Í síðustu ræðum hefur svolítið verið talað um þessa sjálfkrafa kæru sem á að auka skilvirkni, stytta málsmeðferð og vera þægilegri fyrir alla. Þeir sem vinna í þessum málaflokki hafa auðvitað verið að benda á að þetta virki ekki þannig. Þetta virki einmitt á öndverðan hátt gagnvart þeim sem hafa fengið niðurstöðu, vegna þess að þeir vilji nýta tímann sem mögulegur er til að undirbúa sig betur. Ég ætla að leyfa mér að vitna í umsögn Rauða krossins frá því í fyrravetur þar sem verið er að tala um að þarna séu einstaklingar að nýta kærufrestinn til að bæta upp fyrir vanrækslu stjórnvalda á rannsóknarskyldu sinni, svo öll nauðsynleg gögn geti legið fyrir og talsmaður geti fjallað sérstaklega um þau í greinargerð á kærustigi. Hér skal einnig áréttað að úrskurður kærunefndar útlendingamála er lokaúrskurður í máli viðkomandi þar sem möguleikar umsækjenda um alþjóðlega vernd til þess að bera mál sitt undir dómstóla hafa verið takmarkaðir verulega, svo ég nefni eitthvað af þessu sem hefur verið fært í tal í umræðunum í dag.

Ég ætla að leyfa mér í lokin að gagnrýna það fólk sem notar álagið sem núna er á kerfinu og innviðunum okkar, út af fólki sem er á flótta frá stríði í Úkraínu, til að þrengja að réttindum annarra sem koma inn á öðrum forsendum, frá öðrum stöðum og á ekki að tengja við þennan tiltekna hóp. Við erum búin að taka sérstaka ákvörðun varðandi fólkið frá Úkraínu sem allir styðja. Við vissum fyrir fram að þetta yrði áskorun. Við vissum fyrir fram að það yrði álag á alls konar innviði. Svarið við því má ekki vera að herða skrúfuna á öðrum hópum, öðru fólki sem kemur annars staðar frá. Það getur ekki verið svarið. Það er ekki mannúðlegt að gera það. Og því miður er það þannig að sumt í þessu frumvarpi virkar í þá átt. Það er auðvelt að dusta rykið af fjölmörgum umsögnum sem bárust um málið á síðasta þingvetri bara til að fara í gegnum það. Fólk sem vinnur í þessu kerfi við að aðstoða fólk sem flýr neyð í heimalandi sínu bendir á alls konar vankanta á því og við getum ekki skellt skollaeyrum við því. Blöndum ekki álaginu sem er vegna fólks sem kemur frá Úkraínu eða þessum tímabundna fjölda sem kemur frá Venesúela við alla hina. Notum það ekki sem skálkaskjól til að setja harðari útlendingastefnu þegar engin ástæða er til þess.

Þegar við tölum um þessi mál út frá einhverri norrænni fyrirmynd þá langar mig að biðja fólk líka að hafa í huga að framkvæmdin á Norðurlöndunum er ótrúlega ólík á milli landa. Þetta er ekki einn pottur og við á skjön við önnur Norðurlönd. Það er alveg hægt að segja það kinnroðalaust að Danir eru með ótrúlega skilvirkt kerfi í því að reyna að segja nei og koma fólki sem fyrst út. Norðmenn gera þetta öðruvísi. Það er til fyrirmyndar hvernig þeir taka sveitarfélögin inn í þetta og hvernig þeir gera tilraun til að aðlaga fólk þegar það er komið inn.

Síðan verð ég að nefna í blálokin að við verðum að hætta að tala um þennan hóp sem einhverja byrði. Hann er ekki byrði. Við getum ekki bara talað um útgjöld til þessa málaflokks. Þetta fólk kemur hingað og á að fá að vinna og skapa verðmæti fyrir samfélagið, sjálft sig og fyrir fjölskyldur sínar. (Forseti hringir.) Við þurfum á þessu fólki að halda rétt eins og sérfræðingum utan EES og þar fram eftir götunum. Við eigum ekki að nota hælisleitendur til að fá inn vinnuafl en það er jákvæð afleiðing af hælisleitendakerfinu ef þetta er almennilega gert hjá okkur.