útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég er í sjálfu sér ekkert hissa á því að hér sé lítið um þingmenn Framsóknarflokksins og Vinstri grænna þar sem þau afgreiddu frumvarpið úr sínum ranni án athugasemda og fyrirvara og lýst greinilega bara mætavel á það, þótt ég trúi því lítið. Það að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra komi hingað í þingsal og ræði málið við okkur snýst ekki bara um frekju okkar sem viljum hafa hann hérna, njóta nærveru hans og eiga þetta samtal. Það snýst líka um það, sem hefur verið bent á fyrr í dag, að umræður í þingsal eru lögskýringargögn. Þau skipta máli. Það sem sagt er í þingsal skiptir máli. Ég er ekkert hissa á að félags- og vinnumarkaðsráðherra ætli að forðast okkur alla vikuna líkt og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson sagði. Ég er ekkert hissa á því en það er ekki í lagi. Það er ekki boðlegt og ég fer enn og aftur fram á að þessari umræðu verði frestað. Það er ekki hægt að ljúka umræðunni án þess að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra komi og taki þátt.