útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Orra Páli Jóhannssyni, þingflokksformanni Vinstri grænna, fyrir að koma hér í ræðustól og útskýra hvers vegna ráðherrann er fjarverandi. Þetta er stjórnarfrumvarp. Vinstri grænir, Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn hafa samþykkt það í ríkisstjórn. Ég tel mjög mikilvægt að þeir komi hér í þingsal og lýsi skoðunum sínum varðandi þetta mál. Það er rétt að þetta er lögskýringargagn og hér í þessum ræðustól fer hin opinbera umræða fram í þingsal. Ég hef þá tilfinningu að Vinstri grænir vilji ekki óhreinka sig í þessari umræðu, halda fjarlægð við frumvarpið en styðja það samt þegar kemur að atkvæðagreiðslu. Það er mjög mikilvægt og ég fagna því að þingmaður Vinstri grænna, sem er nefndarmaður í allsherjar- og menntamálanefnd, taki þátt í umræðunni. En þetta er svo mikilvæg umræða að mér finnst ekki hægt að bæði þingmenn Vinstri grænna og Framsóknarflokks skorist undan því að taka þátt í henni efnislega á nokkurn einasta hátt. Ég vona að umræðunni verði frestað og þá gæfist þingmönnum Vinstri grænna og ráðherrunum tækifæri til að taka til máls.