útlendingar.
Frú forseti. Undanfarnar vikur hafa stór orð verið látin falla um málefni umsækjenda um alþjóðlega vernd. Hæstv. dómsmálaráðherra hefur talað um að stjórnleysi ríki í málaflokknum. Hann hefur gefið til kynna að verndarkerfið sé misnotað í stórum stíl. Þá er sérstaklega verið að gera tortryggilegt að fólk frá Venesúela sé að sækja hér um vernd og fjölmiðlar hafa flutt fréttir um að hæstv. dómsmálaráðherra vilji koma upp lokuðum búðum fyrir fólk sem hefur sótt um vernd á Íslandi. Hér hefur ráðherra dregið upp mjög svarta mynd af stöðu mála og um leið gefið til kynna að hann hyggist bregðast við með mjög afgerandi hætti, með afgerandi breytingum á lagarammanum um málefni útlendinga.
Ég ætla ekkert að draga fjöður yfir það að það er heilmikil áskorun að taka vel á móti stórum hópi fólks, fólks sem er á flótta og fólks sem leitar eftir vernd á Íslandi. Þetta kallar allt saman á að innviðir samfélagsins séu styrktir, að samið sé við sveitarfélög og þeim gert kleift að bregðast við, að málsmeðferð sé hraðað eins og kostur er án þess að það bitni á réttindum fólks, að fólki sé gert að vinna, fái atvinnuréttindi o.s.frv. Þetta er áskorun og við hljótum að gera þá kröfu til ríkisstjórnar hverju sinni, sérstaklega á tímum þegar geisar stríð í Evrópu og þegar mikill fjöldi fólks í neyð leitar hingað, að gengið sé rösklega til verks til að takast á við þessar áskoranir, að betrumbæta móttökukerfið og styrkja samfélagsinnviðina, gera sveitarfélögunum kleift að taka vel á móti fólki, að börn komist í skóla. Auðvitað eigum við alltaf að leitast við að tryggja að verndarkerfið sé bæði skilvirkt og sanngjarnt og það byggi á reglum sem eru í samræmi við réttarvitund og réttlætiskennd fólks, að þetta séu ekki reglur sem skapa trekk í trekk tilvik og afleiðingar sem fólki bara blöskrar.
Eins er það alveg hárrétt sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir hefur fjallað um í fjölmiðlum að það verður að gera allt sem hægt er til að koma í veg fyrir að fólk sem sækist eftir vernd verði fyrir misnotkun af einhverju tagi, misneytingu. Ég hefði kannski haldið, miðað við alla þessa umræðu, þessa miklu umræðu í fjölmiðlum, á samfélagsmiðlum og hérna í þingsal, og miðað við hvernig stjórnarliðar tala, að þá stæði til að leggja fram einhverjar lausnir á þessu, að það ætti kannski að fara að ráðast í einhverjar aðgerðir til að styðja betur við sveitarfélögin, sem bera hitann og þungann af móttöku fólks, að það kæmist kannski meiri skriður í rammasamningsgerð við sveitarfélögin vegna samræmdrar móttöku. Maður hefði kannski líka haldið að ástæða væri til að bregðast einhvern veginn við þeirri stöðu sem margir lýsa áhyggjum af, að fólk í þessari viðkvæmu stöðu verði fyrir misneytingu af einhverju tagi. En ekkert af þessu, heldur ekki t.d. þetta með fólk sem leitar hingað frá Venesúela, er að finna í þessu frumvarpi, ekkert sem er í nokkru einasta samræmi við þennan málflutning og þessa umræðu sem stjórnarliðar hafa borið uppi undanfarnar vikur. Hér er ekki verið að boða neina endurskipulagningu á þjónustu við flóttafólk, ekkert er verið að gera til að sporna gegn því að t.d. fólk frá Úkraínu, sem hefur fengið vernd, þurfi að bíða vikum og mánuðum saman eftir húsnæði eða að börn þurfi að bíða eftir skólavist, fólk þurfi að bíða eftir viðunandi góðu húsnæði. Það eru engar lausnir hér að finna, né í öðrum frumvörpum og þingmálum á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar, sem taka með neinum hætti á þessum stóru áskorunum.
Í rauninni er þetta bara endurunnið efni sem við erum með hérna. Hér virðist (Gripið fram í: Eru það ekki hringrásaraðgerðir?)— ha? Já, já. — Það er látið eins og stóra áskorunin sé enn þá t.d. sú að fólk sé ekki að fara úr landi þegar því hefur verið synjað um hæli, eins og það sé það sem er að skapa stórkostlegt álag á kerfin okkar núna. Ég held að allir sem koma nálægt þessum málaflokki viti alveg að svo er ekki. Stóra áskorunin er auðvitað sú að finna út úr því og leita leiða til þess að taka vel á móti þessum gríðarlega fjölda fólks sem leitar hingað, fyrst og fremst frá Úkraínu, frá Venesúela, í samræmi við fyrirmæli frá kærunefnd útlendingamála, og frá Palestínu. Ég hygg að það sé þriðja landið á listanum yfir þau lönd sem flestir koma frá. Langstærstur hluti þessa fólks eru hópar sem eiga bara sannarlega rétt á vernd á Íslandi samkvæmt þeim lögum og reglum sem við höfum komið okkur saman um og samkvæmt, t.d. í tilviki Venesúela, ákvörðun sjálfstætt starfandi úrskurðarnefndar.
Það er ekkert í þessu frumvarpi sem hefur neitt með það að gera sem öll umræða undanfarinna vikna hefur snúist um. Það er ekkert hérna sem er í einhverju samhengi við þessa orðræðu dómsmálaráðherra og þau vandamál og meintu vandamál sem hæstv. ráðherra hefur lýst. Hér er ríkisstjórnin ekki aðeins að heykjast á því að taka á þessum áskorunum heldur eru atriði í þessu frumvarpi sem ég held að geti skapað ný vandamál. Tökum t.d. bara ákvæðið um þjónustusviptinguna 30 dögum eftir lokaákvörðun. Ég velti því fyrir mér hvort haft hafi verið eitthvert lágmarkssamráð við sveitarfélög áður en þetta var lagt til, því að ég held að dæmin sanni það nú bara að undir svona kringumstæðum leitar fólk skjóls hjá sveitarfélögum. Þá vaknar auðvitað sú spurning hvort þarna sé ekki bara einmitt verið að varpa enn frekari þyngslum og enn meira álagi yfir á sveitarfélögin, sveitarfélög sem eiga nú þegar í basli með að sinna lögbundnum verkefnum, m.a. vegna fjársveltistefnu þessarar ríkisstjórnarinnar þegar kemur að málefnum fatlaðra og fleiri lögbundnum skyldum.
Ég ætlaði nú aðallega að flytja ræðu um þau ákvæði í þessu frumvarpi sem heyra undir málefnasvið hæstv. félagsmálaráðherra. Ég verð að segja að mér finnst mjög ankannalegt að hann sé ekki hérna með okkur í þessari umræðu því að þetta er frumvarp sem tekur á atriðum sem heyra undir tvo ráðherra. Ég hygg að það sé algjörlega óumdeilanlegt. Hæstv. dómsmálaráðherra talar sjálfur um að sá þáttur í þessu frumvarpi sem heyrir undir félagsmálaráðherra sé ívilnandi. Þar er hann væntanlega að vísa til atvinnuréttindaþáttarins. Auðvitað vaknar sú spurning hvers vegna það er ekki löngu búið að ná því fram í þverpólitískri sátt að mannúðarleyfum fylgi atvinnuréttindi. Ég hygg að það sé enginn pólitískur ágreiningur um það mál en einhverra hluta vegna er það alltaf fast í þessum pakka hérna, sem svo er pólitískur ágreiningur um og allir vita að er bullandi pólitískur ágreiningur um.
Hitt sem heyrir undir félagsmálaráðherra er auðvitað þessi þjónustusvipting sem ég nefndi og sem leiðir í rauninni af b-lið 1. gr. í frumvarpinu þar sem segir að við 25. tölulið bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Útlendingur telst ekki umsækjandi um alþjóðlega vernd þegar hann hefur fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi.
Ég held að þjónustusvipting, það að svipta fólk á ákveðnum tíma eftir að lokaákvörðunin er tekin húsnæði og framfærslu, geti vart talist ívilnandi ákvæði. Það væri alla vega býsna skrautleg lagatúlkun að líta á það sem svo. Þannig að ég styð það eindregið að hæstv. félagsmálaráðherra komi hingað og taki þátt í þessari umræðu með okkur.
Ég vil kannski rétt undir lokin, af því að ég á nokkrar mínútur eftir, vekja athygli á því sem mér finnst vera stórpólitísk tíðindi sem komu fram hérna áðan í andsvari hæstv. dómsmálaráðherra við ræðu hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Hæstv. ráðherra sagði þegar umræðan barst að kærunefnd útlendingamála, að því er viðkemur fólki frá Venesúela, að hann væri sammála þingmanninum í því að það þyrfti að skoða alveg sérstaklega breytingar á lögum með tilliti til þessa, að þingið þyrfti að skoða sinn hug í framtíðinni hvernig menn ætluðu að bregðast við því, þ.e. því að í mörgum tilfellum værum við með nefndir úti í bæ sem ábyrgðinni væri varpað á og að í útlendingamálum hefðu ákveðin völd verði færð frá framkvæmdarvaldinu.
Ég held reyndar að í þessu felist ákveðinn misskilningur hjá hæstv. ráðherra af því að kærunefnd útlendingamála heyrir vissulega undir framkvæmdarvaldið þótt hún sé sjálfstæð kærunefnd, úrskurðarnefnd. Ég held að erfitt sé að skilja orð dómsmálaráðherra hér öðruvísi en svo að hann vilji skoða það alvarlega að leggja niður það fyrirkomulag að sjálfstæð kærunefnd útlendingamála hafi lokaorðið á framkvæmdarvaldsstiginu í málum útlendinga. Í því fælist afturhvarf, væntanlega til þess tíma þegar þessar ákvarðanir voru teknar inni í ráðuneytinu. Ég hygg að það hafi verið mikil framför og réttarbót þegar hæstv. fyrrverandi ráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir, hafði forgöngu um að koma á fót kærunefnd útlendingamála í staðinn fyrir að þessar ákvarðanir væru teknar inni í ráðuneyti. Þannig að mér þætti fróðlegt ef hæstv. dómsmálaráðherra tekur frekari þátt í umræðunni að hann kannski útskýri fyrir okkur hvort hann sé í alvörunni þeirrar skoðunar að það eigi að leggja niður þetta kerfi og hvað hann sjái þá fyrir sér í staðinn, annað en að færa þessar ákvarðanir aftur inn í ráðuneytið.
Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þetta. Það er rétt að minna á að haustið 2017 náðist þverpólitísk sátt allra flokka nema Sjálfstæðisflokksins um að ráðast í breytingar á útlendingalögum með það fyrir augum að tryggja betur vernd einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu og þá að Alþingi myndi taka sérstaklega afstöðu til þess hvernig megi styrkja stöðu barna sem umsækjenda um alþjóðlega vernd til frambúðar og að framkvæmd útlendingalaga verði í sem bestu samræmi við barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Ég held að sú leið sem var farin 2016, sem er í rauninni boðuð 2017 líka, sé talsvert heppilegri en þessi pattstaða í útlendingamálum sem ríkisstjórnin hefur boðið okkur upp á fimm ár í röð með því að leggja ítrekað fram frumvarp sem alveg gríðarlegur ágreiningur er um.