153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

útlendingar.

382. mál
[19:25]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég tek undir þetta. Það er ábyrgðarhluti að ráðherra tali með þessum hætti. Það kallar á að það sé útskýrt með greinargóðum hætti hvað átt er við. Það kallar líka á einhver viðbrögð og að Alþingi séu kynnt möguleg viðbrögð og mögulegar sviðsmyndir en ekkert slíkt er að finna í þessu þingmáli né hefur neitt slíkt verið boðað í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Í þessu ljósi veit maður ekki alveg hvað fólki gengur til með orðræðu undanfarinna vikna, það verður að segjast.