153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

útlendingar.

382. mál
[19:26]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Mig langar til að taka undir orð hv. þingmanns um að það sé mikilvægt að verndarkerfið okkar sé skilvirkt og sanngjarnt. Mér finnst reyndar það frumvarp sem við erum að ræða hér í dag einmitt þess eðlis að vera skref í rétta átt þótt e.t.v. einhverjum finnist ekki nógu langt gengið. Þá langaði mig til að spyrja hæstv. ráðherra út í orð hans um það að frumvarpið taki ekki á stórum áskorunum, hvort það sé meginástæðan fyrir andstöðu hv. þingmanns. Hvað finnst honum t.d. um einhverjar þær breytingar sem frumvarpið sem hér er til umræðu boðar, t.d. ákvæði um sjálfkrafa kerfi í ákveðnum tilvikum, reglur til að stytta málsmeðferðartíma í málum fylgdarlausra barna, ákvæði um undanþágu frá kröfu um tímabundið atvinnuleyfi og fleiri slík ákvæði? Hvað finnst hv. þingmanni um þær breytingar sem boðaðar eru með frumvarpinu?