útlendingar.
Virðulegur forseti. Ástæðan fyrir andstöðu minni við þetta frumvarp er auðvitað eitthvað sem ég hef margrakið, t.d. síðast þegar það var mælt fyrir því, og ég hygg að hv. þm. Helga Vala Helgadóttir muni fara í mjög löngu máli yfir helstu efnisatriðin sem við höfum gagnrýnt og ég hef heyrt marga gagnrýna hér í þessum sal. Hér er spurt um t.d. atvinnuréttindin, atvinnuleyfi, að þau komi sjálfkrafa vegna mannúðarsjónarmiða. Það er eitthvað sem ég styð heils hugar. Eins og ég nefndi reyndar áðan þá held ég að það sé eitthvað sem Alþingi hefði átt að vera löngu búið að sameinast um án þess að troða því í þennan gríðarlega umdeilda pakka. Af því að hér er talað um börn þá t.d. hef ég áhyggjur af því að það standi til að breyta þeirri reglu að börn eigi rétt á efnismeðferð ef þau hafa verið á Íslandi í tíu mánuði frá því að umsókn var lögð fram og er enn. Ég er svolítið hræddur um að það sé ekki alveg búið að hugsa þetta til enda (Forseti hringir.) og vil minna á að þessar breytingar á tímafrestum er eitthvað sem fyrrverandi hæstv. dómsmálaráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, (Forseti hringir.) mælti fyrir á sínum tíma.