útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég held að við verðum bara að horfast í augu við að það munu ekki allir fara sjálfviljugir úr landi 30 dögum eftir að lokaákvörðun liggur fyrir. Þannig er bara mannlífið. Spurningin er þá frekar hvernig við eigum að bregðast við því. Er það sérstaklega skynsamlegt endilega að svipta fólk með öllu þjónustunni? Eru ekki bara allar líkur á því að þunginn færist þá eitthvert annað, t.d. yfir á sveitarfélögin? Erum við ekki bara að framkalla heimilisleysi með þessu? Viljum við að fólk sofi einhvers staðar undir brúm eða á götuhornum? Mér finnst það vera hin pólitíska spurning sem blasir við okkur, hver sé skilvirkasta og skynsamlegasta leiðin til að leysa þetta, af því að við getum ekki bara gefið okkur þá forsendu að fólk hljóti að fara sjálfviljugt í öllum tilvikum, það verði farið úr landi 30 dögum eftir að lokaákvörðun liggur fyrir. Það er bara óskhyggja. (DME: Já eða nei.)