útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína. Ég er með nokkrar spurningar sem vöktu athygli mína. Ég er ekki alveg með það á hreinu en mér skildist að hann hefði gert athugasemd við b-liðinn í 1. gr. sem er í mínum huga bara neikvæð skilgreining á því hver er umsækjandi um alþjóðlega vernd. Það liggur fyrir í 25. tölulið hver það er; útlendingur sem óskar eftir viðurkenningu á stöðu sinni sem flóttamaður eða ríkisfangslaus einstaklingur hér á landi. En svo kemur núna neikvæð skilgreining, bara að útlendingur teljist ekki umsækjandi ef hann hefur fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi. En ef þú ert búinn að fá endanlega niðurstöðu ertu ekki áfram umsækjandi, það er ekki hægt, þannig að ég skil þá athugasemd ekki.
Annað sem mig langar að spyrja varðar það sem hv. þm. Logi Einarsson kom með og er mikið áhugamál hjá mér. Hann lagði til og taldi að við gætum komið á víðtæku samráði milli stjórnmálaflokkanna um breytingu á lögum um útlendinga, alþjóðlega vernd. Telur hann að það sé hægt (Forseti hringir.) að ná samkomulagi eða telur hann að ekki sé hægt að ná samkomulagi? Mér heyrðist hann segja ekki en ég myndi gjarnan vilja fá að heyra afstöðu hans til þess sem formaður flokks hans sagði.