153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

útlendingar.

382. mál
[19:56]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er nú orðið til siðs hér í þinginu að þakka þingmönnum fyrir andsvör en í þessu tilfelli held ég að það sé sérstakt tilefni til þess, vegna þess að hv. þingmaður er yfirleitt alltaf með staðreyndir á hreinu í þessum málaflokki þó að við drögum ekki sömu ályktanir af þeim. Hv. þingmaður talar út frá staðreyndum og kemur hér inn á atriði sem ég hef nú nefnt einhvern tímann áður í ræðu. Það má velta því fyrir sér, ef það þarf að borga 10.000 evrur eða taka þær að láni til að komast í hættuför í gegnum heila heimsálfu og yfir Miðjarðarhafið eða aðra leið, hvernig á því standi að þetta fólk noti ekki þennan pening til þess einfaldlega að kaupa sér flugmiða beint til Evrópu. Það er vegna þess að fólkið fær ekki vegabréfsáritun. Það fær ekki að koma beint með flugi. Þetta finnst mér svona hálfbrjálæðislegt í nálgun Evrópu á þennan málaflokk, ef menn eru búnir að fara í gegnum alla þessa hættuför þá er fólkinu tekið með kostum og kynjum á aðalbrautarstöðinni í München, fær blóm og konfekt o.s.frv., en hvers vegna fékk þetta fólk ekki að fara bara með flugi? Það er vegna þess að þessi lönd gera sér grein fyrir því að ef sú væri raunin yrði fjöldinn einfaldlega of mikill.