útlendingar.
Herra forseti. Ég skil vissulega að fólk frá Venesúela vilji frekar búa á Íslandi en í heimalandi sínu, en vandinn er sá að Venesúela er ekki eina landið í heiminum þar sem fólk býr við lök kjör og jafnvel hættu. Við síðustu mælingu sem ég fletti upp hér áðan eru 118 lönd í heiminum fátækari en Venesúela og í mörgum þeirra eru stjórnvöld við lýði sem eru á margan hátt óhugnanleg. Því miður getum við ekki tekið við öllum þeim sem hefðu áhuga á að flytja frá þessum löndum til Íslands. Einhvers staðar verðum við að draga mörkin. Þess vegna leggjum við til að við lítum til stefnu Dana og leitumst við að koma upp móttökumiðstöð þar sem fólk getur í nærumhverfi sínu komið í sæmilegt öryggi og sótt um á Vesturlöndum. Fái fólk hæli og sé boðið til Íslands eða annarra landa, þá komi það einfaldlega með flugvél, (Forseti hringir.) Airbus A380 eða einhverri annarri, í stað þess að við séum með kerfi sem hvetur til hættufarar.