útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir ræðuna. Ég er nú svo sem ekki alltaf sammála hv. þingmanni í þessum málaflokki en hann er ansi glúrinn og naskur við að gagnrýna ríkisstjórnina og þessi áform úr annarri átt en minn flokkur.
Ég ætla aðeins að fá að staldra við á svipuðum slóðum og hv. þingmaður á undan mér, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir. Ég hnaut um söluvöru glæpagengja, þessi orð eða hugtök. Ég velti því fyrir mér að ef fólk í þessari neyð er líka söluvara glæpahópa, hvort það sé þá ekki enn meiri ástæða til að taka utan um þann hóp og veita honum aðstoð frekar en að ýta honum frá. Ég átta mig ekki alveg á hvernig sú hugmyndafræði gengur upp, að úr því að einhverjir séu söluvara glæpahópa í þessu öllu þá sé lausnin að herða allt. Lendum við ekki bara í öngstræti með því að fara þá leið frekar en hina, að taka á móti fólkinu með opinn faðminn?